Skerjabraut 17
77.900.000 kr.
118 m²
4
3
1
1
Já

Deildu þessari eign

EIGNASALA.IS KYNNIR – SKERJABRAUT 17, 245 SANDGERÐI
Glæsilegt og sérlega vel skipulagt 145 m² ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, 27 m² innbyggðum bílskúr, gólfhita, stórri timburverönd og frágenginni lóð.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!
Um er að ræða fallegt og nýlegt fjölskylduhús, byggt árið 2023. Eignin er samtals 145 m², þar af er íbúðarrými 118 m² og innbyggður bílskúr 27 m².
Húsið skiptist í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og bjart opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Innangengt er í bílskúr.
Úr stofu er útgengt á stóra timburverönd með skjólveggjum. Frá eigninni og veröndinni er fallegt útsýni yfir opið svæði og til sjávar.
NÁNARI LÝSING
Forstofa: Góð og rúmgóð aðkoma að húsinu.
Eldhús: Bjart og opið við stofu og borðstofu. Hvít innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og eldhúseyju.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með góðum gluggum og fallegu útsýni. Úr stofu er útgengt á timburverönd.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott og vel skipulagt baðherbergi.
Þvottahús/geymsla: Sér þvottahús með innréttingu, staðsett á milli íbúðar og bílskúrs.
Bílskúr: 27 m² innbyggður og innangengur bílskúr. Epoxý/lakkað gólf, gólfhiti og rafdrifinn hurðaopnari.
Gólfhiti: Gólfhiti er í öllu húsinu, þar með talið bílskúr.
Verönd og lóð: Stór timburverönd er á baklóð og er hún að mestu afgirt með skjólveggjum. Lagnaleið er fyrir heitan pott. Lóð er grasilögð, bílaplan malbikað og stéttir frágengnar.
Þar sem um endaeign er að ræða nær sérnotaflötur einnig meðfram austurgafli hússins. Tvö bílastæði fylgja eigninni og lagnaleið er að framan fyrir rafhleðslu bifreiðar.
Húsið er timburhús á steyptum sökkli og botnplötu, byggt árið 2023. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan og þak er klætt bárujárni.
Helstu kostir eru endaraðhús á einni hæð, þrjú rúmgóð svefnherbergi, 27 m² innbyggður bílskúr, gólfhiti, stór timburverönd, fullfrágengin lóð og fallegt útsýni yfir opið svæði og til sjávar.
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ SÝNUM 
Júlli – 899 0555, Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397, Reynir – 777 0915, Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
 tölvupóstur julli@eignasala.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Tegund

Raðhús á einni hæð

Stærð

118 m²

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Stofur

1

Baðherbergi

1

Byggingaár

2023

Fasteignamat

68.390.000 kr

Brunabótamat

70.600.000 kr

Takk fyrir!

Við höfum móttekið bókunina.
Við hlökkum til að sýna þér eignina sem vilt skoða.

Bókaðu þig í opið hús

Þetta er krafist
Þetta er krafist
Sláðu inn netfang Notið netfang með (@) og (.)
Sláðu inn símanúmerið þitt Sláðu inn gilt númer eins og +1555-123-4567
Þetta er krafist
Eign/ir sem þú vilt skoða?
Þetta er krafist

Eitthvað klikkaði!

Vinsamlegast reyndu aftur!

Contact Us

Takk fyrir!

Við höfum samband sem fyrst.

Áhugi á eigninni?

Skildu eftir símanúmer og við höfum samband

Þetta er krafist
Sláðu inn netfang Notið netfang með (@) og (.)
Sláðu inn símanúmerið þitt Sláðu inn gilt númer eins og +1555-123-4567

Eitthvað klikkaði!

Vinsamlegast reyndu aftur.