Skógarbraut 921
49.000.000 kr.
89,9 m²
3
2
1
0
Nei

Deildu þessari eign

eignasala.is kynnir eignina Skógarbraut 921, 262 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 03-05, fastanúmer 230-9277 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
SKÓGARBRAUT 921 – ÍBÚÐ 305
KAUPLEIGA / KAUPRÉTTUR Í BOÐI
Eigandi býður jafnframt upp á kaupleigu með kauprétti í allt að 12 mánuði.
Eignasala.is kynnir bjarta og snyrtilega 89,9 m² íbúð á 3. hæð við Skógarbraut 921 í Reykjanesbæ. .
Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 89,9 m², þar af er íbúðin 86,7 m² og sérgeymsla 3,2 m². Svalir eru 3,4 m². Eignin er í steinsteyptu fjölbýlishúsi, byggðu árið 1978.
Nánari lýsing:
Íbúðin er björt og snyrtileg og hefur verið endurnýjuð að innan. Eldhús er með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi, innbyggðum ofni og helluborði. Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum og útgengi á svalir. Frá íbúðinni er fallegt og opið útsýni til sjávar.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum. Falleg og samræmd gólfefni eru á íbúðinni og gott skápapláss. Sérgeymsla fylgir eigninni.
Við húsið eru góð bílastæði, hleðslustæði fyrir rafbíla og leiksvæði er við húsið.
Kaupleiga / kaupréttur
Ásett verð eignarinnar er 49.000.000 kr.
Mánaðarleg leiga er 335.000 kr., auk hússjóðs, hita, rafmagns og annars rekstrarkostnaðar.
Eigandi býður upp á þann möguleika að gera kaupleigu-/kaupréttarsamning til allt að 12 mánaða. Kaupverð er ákveðið við upphaf samnings og leigutaki fær rétt til að kaupa eignina á samningstímanum.
Nýti leigutaki kaupréttinn koma greiddar húsaleigugreiðslur til frádráttar kaupverði eignarinnar. Greiðslur vegna hússjóðs, hita, rafmagns og annars rekstrarkostnaðar koma ekki til frádráttar. Þetta er sama meginfyrirkomulag og kemur fram í kaupréttarsamningnum sem við erum að miða við.
Miðað við 335.000 kr. mánaðarleigu nema leigugreiðslur 2.010.000 kr. eftir 6 mánuði og 4.020.000 kr. eftir 12 mánuði. Þær greiðslur koma til frádráttar kaupverði verði kauprétturinn nýttur, samkvæmt nánari skilmálum kaupréttarsamnings.
Áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja flytja inn strax og stefna að kaupum á eigninni innan næstu 12 mánaða.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a , í síma 4206070 eða , tölvupóstur julli@eignasala.is og joi@eignasala.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Tegund

Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.

Stærð

89,9 m²

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Stofur

1

Baðherbergi

0

Byggingaár

1978

Fasteignamat

41.820.000 kr

Brunabótamat

44.650.000 kr

Takk fyrir!

Við höfum móttekið bókunina.
Við hlökkum til að sýna þér eignina sem vilt skoða.

Bókaðu þig í opið hús

Þetta er krafist
Þetta er krafist
Sláðu inn netfang Notið netfang með (@) og (.)
Sláðu inn símanúmerið þitt Sláðu inn gilt númer eins og +1555-123-4567
Þetta er krafist
Eign/ir sem þú vilt skoða?
Þetta er krafist

Eitthvað klikkaði!

Vinsamlegast reyndu aftur!

Contact Us

Takk fyrir!

Við höfum samband sem fyrst.

Áhugi á eigninni?

Skildu eftir símanúmer og við höfum samband

Þetta er krafist
Sláðu inn netfang Notið netfang með (@) og (.)
Sláðu inn símanúmerið þitt Sláðu inn gilt númer eins og +1555-123-4567

Eitthvað klikkaði!

Vinsamlegast reyndu aftur.